FJÖLBÝLI TIL FRAMTÍÐAR
HÖNNUN ÍBÚÐA OG SKIPULAG BYGGÐAR MEÐ TILLITI TIL LÍFSGÆÐA
MÁLÞING Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
FIMMTUDAGINN 18. JANÚAR 2007
Fagfélög sérfræðinga á sviði skipulags- og byggingarmála boða til málþings í samvinnu við Umhverfisráðuneytið og Reykjavíkurborg um gæðamál í hönnun og byggingu fjölbýlishúsa. Markmið þingsins er að leiða fram nýja þekkingu um fjölbýli, skilgreina “gæði” íbúða og leita eftir nýjungum í ljósi þeirrar einhæfni sem einkennir hönnun og skipulag fjölbýlisbyggðar á Íslandi.
Í framsöguerindum innlendra og erlendra fyrirlesara verður m.a. fjallað um tæknileg og huglæg gæði í hönnun fjölbýlishúsa, hljóðvistarmál, ný viðhorf í skipulagi þéttrar byggðar, hönnun og frágang fjölbýlishúsalóða, loftslagsáhrif og mótun byggðar með tilliti til veðurfars, óskir neytenda um búsetuform og sögulega þróun í húsagerðum.
Að loknum framsöguerindum verða pallborðsumræður með þátttöku fagfólks, neytenda, framleiðenda og seljenda húsnæðis ásamt embættismönnum.
Dagskrá þingisins verður nánar kynnt þegar nær dregur.
Málþingið er samstarfsverkefni Arkitektafélags Íslands, Byggingafræðinga-félags Íslands, Félags íslenskra landslagsarkitekta, Skipulagsfræðingafélags Íslands, Tæknifræðingafélags íslands, Verkfræðingafélags Íslands ásamt Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar og Umhverfisráðuneytinu.