Í tilefni af alþjóðlega skipulagsdeginum stendur Skipulagsfræðingafélag Íslands fyrir málþingi um nýjar rannsóknir í skipulagsfræði. Umfjöllunarefnin eru af ýmsum toga, svo sem ný landsskipulagsstefna, mismunandi nýting borgarrýma og skipulag á virkjunarsvæðum.
Málþingið verður haldið fimmtudaginn 7. nóvember kl. 9-12 Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3.
Dagskrá
9:00-9:05 Setning (Sverrir Örvar Sverrisson, formaður Skipulagsfræðingafélags Íslands
9:05-9:25 Landsskipulagsstefna Íslands 2013-2024 (Eva Dís Þórðardóttir, skipulagsfræðingur)
9:25-9:45 Húsnæðisstefna og litlar íbúðir (Egill Þórarinsson, skipulagsfræðingur)
9:45-10:05 Borgarbúskapur í fjölbýlisgörðum (Arnþór Tryggvason, MSc skipulagsfræði)
10:05 -10:30 Kaffi
10:30 – 10:50 Greining á umhverfi Hellisheiðarvirkjunar og skipulagstillaga (Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir, MSc skipulagsfræði)
10:50 – 11:10 Göngugötur í miðbæjum (Eva Þrastardóttir, MSc skipulagsfræði)
11:10 – 11:30 Grjótaþorpið – Þorpið í borginni (Gunnar Ágússton og Íris Stefánsdóttir MSc nemar við LBHÍ)
11:30 – 12:00 Umræður
Skráning tilkynnist á netfangið skipulagsfraedi@gmail.com eða á facebook síðu félagsins eigi síðar en 6.nóvember.
Skráningargjald er 1000 kr. og greiðist með millifærslu á reikning Skipulagsfræðingafélags Íslands.
Kt. 670885-0629. Rnr. 513-26-9260.
Félagsmenn SFFÍ greiða ekki skráningargjald.